Nýtt frumvarp Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra segir til um að umsækjendur frá öðrum ríkjum EES geti framvegis sótt um styrk til Kvikmyndasjóðs. Um leið verði sett ítarlegri skilyrði en nú eru um að styrkur verði einungis veittur vegna íslenskra kvikmynda, kvikmynda sem eru á íslenskri tungu eða hafa íslenska menningarlega eða samfélagslega skírskotun.
Frumvarpinu er ekki síst ætlað að færa ákvæði kvikmyndalaga til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar sem felast í EES-samningnum um ríkisaðstoð og banni við mismunun á grundvelli þjóðernis.
Engin fjárhagsleg eða efnahagsleg áhrif eru fyrirséð ef frumvarpið verður að lögum. Fjárveitingar til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Kvikmyndasjóðs eru veittar í fjárlögum og því hafa þær breytingar á stöðu umsækjenda frá öðrum ríkjum innan EES-svæðisins, sem frumvarpið felur í sér, engin áhrif á útgjöld ríkisins í málaflokknum.
Í greinargerð með frumvarpinu stendur að möguleikar íslenskra kvikmyndagerðarfólks muni ekki minnka við þetta: „Erlendir ríkisborgarar frá ríkjum EES-svæðisins hafa sótt um styrki úr Kvikmyndasjóði en slík tilvik eru svo fá að þau hafa ekki haft áhrif á möguleika íslenskra ríkisborgara til að fá styrki að nokkru nemi auk þess sem réttindi ríkisborgara EES-ríkja eru gagnkvæm“.