Opna fyrsta bjórgarðinn í borginni

Fyrsti bjórgarður sinnar tegundar er að hefjha starfsemi í Reykjavík en áætlað er að hann verði kominn á fullan damp nú um helgina á Fosshótelinu nýja við Höfðatorg.

Í Bjórgarðinum verður mesta úrval bjórs á krana á landinu, alls 22 tegundir, þar af eru tveir svokallaðir nítró-kranar fyrir þá sem telja sig vera lengra komna í bjófræðunum. Auk þess verður afar fjölbreytt úrval af bjór í flöskum.

Að sögn Lofts H. Loftssonar rekstrarstjóra Bjórgarðsins verður úrvalið á staðnum síbreytilegt en meðal áhugaverðra bjóra á krana í Bjórgarðinum fyrsta kastið verður Blushing Monk frá Founders, Jack Hammer frá Brewdog og By Udder Means frá To Öl. Mesta athygli vekja þó tveir bjórar frá sænska brugghúsinu Omnipollo, annars vegar Leon en ekki síður hinn kunni Nebuchadnezzar sem er IPA-bjór. Bjórar frá Omnipollo hafa ekki áður fengist á krana á Íslandi.

Hægt er að kynna sér úrvalið og afgreiðslutíma á staðnum á heimasíðunni bjorgardurinn.is.