Opna bloggsíðu vegna jóns baldvins

Búið er að stofna bloggsíðuna metoo-jonbaldvin.blog.is, þar sem safnað hefur verið saman 23 sögum af kynferðisbrotum og áreitni Jóns Baldvins Hannibalssonar. Frá þessu er greint á forsíðu Fréttablaðsins í dag.

Sögurnar eru nafnlausar þar sem stofnendur síðunnar vilja beina sjónum að gerandanum Jóni Baldvini Hannibalssyni, sem þær segja að hafi með misbeitingu valds og með því að misnota traust brotið á fjölda kvenna og barna í áranna rás. „Nöfn okkar skipta ekki máli heldur hann sem gerandi. Umræðan á að snúast um hann, brot hans og afleiðingar þeirra. Það er kominn tími til að Jón Baldvin taki afleiðingum gerða sinna,“ segir á síðunni.

Að baki síðunni standa konur sem stofnuðu #MeToo Facebook hóp vegna Jóns Baldvins. Þær segjast hafa hafið þessa vegferð þegar þeim barst til eyrna að Jón Baldvin væri enn að áreita konur.

Viðtal og aðsend grein

Jón Baldvin var í viðtali við Fanneyju Birnu Jónsdóttur í Silfrinu á RÚV í gær. Þar vísar hann öllum ásökunum um kynferðisbrot á bug og segir að það megi rekja þær allar til dóttur sinnar, Aldísar Schram, að það sé hópur kvenna sem vilji vitna með henni. Segir hann meðal annars að ásökun Carmen Jóhannsdóttur um áreitni í sinn garð síðastliðið sumar hafi verið sviðsett.

Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í morgun segir hann að ásakanir á hendur sér megi útskýra sem skipulagða rógsherferð gegn honum sem hafi verið hafin til að spilla fyrir fyrirhugaðri bók og málþingi um arfleifð jafnaðarstefnunnar, sem hafi staðið til í tilefni af áttræðisafmæli hans. Hann segir að það hafi átt að hræða fólk frá því að kaupa bókina eða fagna afmælinu með honum og segir að allir samfélagsmiðlar og fjölmiðlar hafi slegist gagnrýnilaust í för rógsherferðarinnar.

Gagnrýna viðtalið

Fjöldi fólks hefur gagnrýnt viðtalið við Jón Baldvin og meðal annars hefur undirskriftasöfnun verið hrundið af stað til stuðnings þolendum Jóns Baldvins, eins og DV.is greinir frá.

Í viðtali við Mbl.is segist Carmen hafa hlegið þegar hún hafi séð viðtalið, svo langsóttar hafi fullyrðingar Jóns Baldvins verið. Hún segir að það sé ekki fræðilegur möguleiki að Aldís hafi skipulagt og sviðsett heimsókn sína til Jóns Baldvins og Bryndísar Schram á Spáni síðastliðið sumar, enda þekkist þær ekki nema óbeint í gegnum Facebook hópinn.

Fréttablaðið greinir frá því að Guðrún Harðardóttir, ein af stofnendum Facebook hópsins og bloggsíðunnar og viðtakandi fjölda óviðeigandi bréfa frá Jóni Baldvini, bendir í Facebook færslu á nokkrar staðreyndavillur sem Jón Baldvin hafi farið með í viðtalinu. Hún segir viðtalið hafa afhjúpað veruleikafirringu Jóns Baldvins.