Opinber sjóður vill ekki boltamynd

Sölvi Tryggvason hefur undanfarið ár unnið að heimildarmynd um íslenska landsliðið, en eins og flestir vita er landsliðið nú nær því en nokkru sinni í sögunni að komast á lokakeppni stórmóts í knattspyrnu. Ef það tækist yrði Ísland fámennasta þjóð sögunnar til að afreka slíkt.
 
Sævar Guðmundsson leikstjóri og Sölvi hafa fylgt liðinu eftir í gegnum alla undankeppni EM 2016 úr meira návígi en nokkru sinni hefur þekkst. Myndin mun því sýna störf leikmanna, þjálfara og annarra starfsmanna landsliðsins í algjörlega nýju ljósi og stiklan gefur örlitla innsýn inn í það myndefni sem hefur þegar verið tekið. Þar gefur til að mynda að líta myndefni að tjaldabaki úr sjúkraherbergjum, af liðsfundum, æfingum, úr liðsrútu, hóteli og úr búningsklefa eftir leiki.
Verkefnið er kostnaðarsamt og Kvikmyndasjóður hefur enn ekki séð sér fært að veita því stuðning. Til þess að þessi mynd um einstaka atburði í íslenskri íþróttasögu geti orðið að veruleika reiðum strákarnir sig á stuðning landsmanna.
 
Piltarnir hafa því sett af stað söfnun á Karolinafund, en stikluna má sjá hér að neðan:
 
 
Karolina Fund söfnunarsíða: https://www.karolinafund.com/project/view/788