Opinber fyrirtæki taka vonlausum tilboðum

Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar verður í viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Þorbjörn segir frá mörgum brotalömum á vinnumarkaði.

Svört atvinna, svik á réttindum iðnaðarmanna, kennitöluflakk og fleira ber á góma í samtali við Þorbjörn í Þjóðbraut í kvöld. Þorbjörn nefnir sem dæmi að þegar réttindi starfsmanna á vinnustað voru könnuð að þar var enginn með iðnréttindi en allir starfsmennirnir, sem voru tuttugu, sögðust vera aðstoðarmenn. „Þar var enginn til að aðstoða.“

Iðnaðarmenn hafa miklar áhyggjur af bágri stöðu iðnmenntunar. Innan skamms mun vanta marga iðnaðarmenn til starfa, þar sem nýliðun er alltof lítil.