Ópal sjávarfang brást ekki við alvarlegum athugasemdum Matvælastofnunar vegna listeríusmits í gröfnum og reyktum laxi fyrr en nokkrum dögum síðar. Ópal er nú undir ströngu eftirliti MAST, sem hefur fært matvælaframleiðandann úr gæðaflokki A niður í C. RÚV.is greinir frá.
Sjá einnig: Lést af völdum listeríusýkingar: Borðaði reyktan lax
Í öðru tölublaði þessa árs af Farsóttafréttum landlæknis kom fram að í byrjun janúar á þessu ári veiktist 48 ára gömul kona, með undirliggjandi ónæmisbælingu, af listeríusýkingu og lést hálfum mánuði síðar af völdum sýkingarinnar. Fram kom að hún hafði borðað reyktan og grafinn lax um jólaleytið 2018. Leifarnar af laxinum voru geymdar í frysti á heimilinu og tókst að rækta bakteríuna úr honum. Ræktanir sem teknar voru frá verksmiðju og vörum framleiðandans leiddu í ljós sömu bakteríu. Í kjölfarið var framleiðslu hætt og öll matvæli innkölluð.
Strangt eftirlit MAST felur í sér að Ópal þarf núna að senda öll sýni í greiningu áður en vörur fara á markað. Um níu prósent matvælafyrirtækja landsins eru í lægsta gæðaflokknum C. Í gæðaflokki A eru 49 prósent matvælafyrirtækja og í gæðaflokki B eru 42 prósent þeirra.
Sjá einnig: Listería fannst í graflaxi
Frá því í byrjun árs hafa komið fram ítrekuð frávik hjá Ópal, samkvæmt nær vikulegum eftirlitsskýrslum MAST. Mest voru frávikin 16 í einni skoðun, og þar af tvö alvarleg frávik, þar sem Ópal sinnti ekki fyrirskipun MAST um innköllun vara, grafins og reykts lax, sem voru smitaðar af listeríu. Skoðunin fór fram þann 11. febrúar á þessu ári og fyrirskipaði MAST tafarlausa innköllun á vörunum. Þremur dögum eftir fyrirskipunina, þann 14. febrúar, voru allar reyktar afurðir Ópal innkallaðar.
Sjá einnig: Listería fannst einnig í reyktum laxi og bleikjuafurðum