Ónýtar tennur vegna mengunar

Niðurstöður úr könnun sem meistaranemi við Háskóla Íslands vann árið 2014 sýna að marktækt fleiri bændur í nágrenni álversins við Grundarganga höfðu orðið varir við brúna bletti á framtönnum sauðfjár og lélega ull.

Þetta kemur fram í viðamikilli úttekt um álverið í Stundinni.

Þar er því haldið fram að fyrirtækið sjái sjálft um mengunarmælingar, pottur sé víða brotinn, aðeins hluti mengunar sé mældur en eigi að síður hafi loftmengun sem rekja megi til útblásturs verksmiðjunnar oft farið yfir mörk.

Í svörum frá verksmiðjunni er því neitað að illa sé staðið að málum.

„Marktækt fleiri eldri ær voru ófrjóar á svæðinu nær iðjuverunum á Grundartanga. Einnig var marktækt hæst hlutfall geldra eldri áa, að meðaltali 7,4%, og lægstar afurðatölur á bæjum suðvestanmegin við iðjuverin, á því svæði þar sem flúor hefur á undanförnum árum mælst einna hæstur í kjálkabeinum sauðfjár. Marktækrar hækkunar gætir í mælingum á magni flúors í kjálkabeinum lamba og hjá fullorðnu fé. Ein af afleiðingum flúoreitrunar er tannlos, og þegar tannheilsa í fullorðnu fé var skoðuð kom í ljós að aðeins um 55% dýra voru enn með allar framtennur, og hafði 6% misst allar framtennur,“ segir í úttekt Stundarinnar þar sem vitnað er til rannsóknar Gyðu S. Björnsdóttur sem skrifaði árið 2014 meistararitgerð í umhverfis- og auðlindafræði.

Kemur einnig fram að flúor sé baneitrað efni í flokki nálægt blásýru.