Það er enginn skortur á umræðuefnum ú Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins og Stefán Einar Stefánsson, aðstoðarfréttastjóri ViðskiptaMoggans láta vaða á súðum um helstu fréttamál líðandi stundar.
Reginhneykslið við byggingu Orkuveituhússins er greint í þaula, en þar virðist enginn vera ábyrgur eins og fyrri daginn í opinberri stjórnsýslu hér á landi - og Dagur borgarstjóri kemur þar af fjöllum, eins og stundum áður í stóru fréttamálunum sem tengjast Reykjavík á síðustu misserum.
Pólitískur flótti Theodóru Þorsteinsdóttur, þingflokksformanns Bjartrar framtíðar, er einnig til umræðu, svo og möguleikinn á kínverskri innrás í íslenskar sveitir, en gestir þáttarins láta líka móðan mása um vanda sauðfjárbænda sem standa frammi fyrir 35 prósenta samdrætti í tekjum sínum á komandi mánuðum.
Stóra brjóstaskorumálið og enn stærra feitubollumálið í síðustu fegurðarsamkeppni er líka til tals undir lok þáttarins, enda er lífið litlaust án skrýtinna frétta.
Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.