Önnur lota verkfalla ríkisstarfsmanna hófst á miðnætti og stendur fram til loka vinnudagsins á morgun hafi ekki samist fyrir þann tíma, en litlar líkur eru taldar á að svo verði.
Ekkert tilboð liggur á borðinu, en fundi deilenda lauk um kvöldmatarleytið í gær án árangurs. Boðað hefur verið til nýs samningafundar korter yfir eitt í dag, mánudag.
Í þessari deilu sitja andspænis samninganefnd ríkisins félagar í SFR, Sjúkraliðafélags Íslands og lögreglumenn, en þeir síðarnefndu hafa ekki verkfallsrétt en hafa margir hverjir átt erfitt með að komast fram úr þá daga sem verkfall hefur varað.
kkert tilboð lægi á borðinu - menn væru að kasta á milli sín hugmyndum og ræða þær. Hann átti ekki von á því að það tækist að semja fyrri þriðjudag.
Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að starfsemin muni truflast verulega. Ekki verður hægt að hringja og panta læknistíma, en þeir sem þegar eiga pantaðan tíma komast að. Þá verður síðdegisvaktin lokuð og verulega dregur úr heimahjúkrun: \"Það eru mjög margir sem fá ekki heimahjúkrun. Við náum að sinna eingöngu þeim sem eiga kannski enga ættingja eða eru það þungir að það þarf jafnvel kannski tvo til að sinna þeirra þörfum. Allra brýnustu sinnum við,“ sagði hún við fréttastofuna.