Önnur hver þjónustukona áreitt í starfi

Nærri önnur hver kona í þjónustustörfum hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í störfum sínum að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem Starfsgreinasambandið lét gera.


Niðurstaðan leiðir í ljós að 41% fólks í þjónustustörfum hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni, þar af önnur hver kona eins og fyrr segir og fjórðungur karlmanna. 


Rannsóknin var unnin af Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og náði til starfsfólks innan hótel-, veitinga- og ferðaþjónustunnar síðastliðinn áratug. Að því er fram kemur í tilkynningu Starfsgreinasambandsins er hér um fyrstu rannsókn sinnar tegundar að ræða - og má augljóslega lesa úr henni að vandinn er verulegur þegar kemur að kynferðislegri áreitni á þessum fjölsóttu vinnustöðum. 


Þátttakendur voru einnig spurðir um áhrif áreitninnar á öryggistilfinningu sína á vinnustað og kváðust 43,4% kvenna að áreitnin hefði haft mjög mikil eða frekar mikil áhrif á öyggistilfinninguna en enginn karlmaður svaraði því til að áreitnin hefði haft mikil áhrif á sig.