Ónæmar bakteríur í íslensku kjöti: íslenskir framleiðendur vara við sömu bakteríum í erlendu kjöti

Í fréttaskýringarþættinum 21 sem sýndur var hér á Hringbraut í gær ræddi Sigmundur Ernir Rúnarsson við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekanda, um innflutning á fersku erlendu kjöti. Segir Ólafur að mikill hræðsluáróður sé í málflutningi andstæðinga innflutningsins sem byggist mikið á röngum upplýsingum um hvernig regluverk og framleiðsla eigi sér stað erlendis.

Hópur sem samanstendur af landbúnaðarframleiðendum og hagsmunasamtökum í landbúnaði standa nú í auglýsingaherferð undir slagorðinu öruggur matur. Birtast nú myndbönd frá hópnum á samfélagsmiðlum þar sem varað er við innflutningi á kjöti og hvaða mögulegar afleiðingar það getur haft. Meðal þess sem talað er um í myndböndunum eru bakteríur sem séu ónæmar fyrir sýklalyfjum.

Það gleymist hins vegar að segja frá í myndbandinu að þær bakteríur hafa einnig fundist í íslensku kjöti. Í skimum sem Matvælastofnun framkvæmdi árið 2018 kom í ljós að í 4% allra lamba greindust sérstakar E. coli bakteríur sem bera þann eiginleika að geta myndað ónæmi gegn sýklalyfjum og eru líklegri til að vera fjölónæmar. Einnig voru um 25% E. coli baktería sem prófaðar voru fyrir sýklalyfjaónæmi í alifuglum og svínum sem reyndist ónæmur fyrir einum eða fleiri sýklalyfjaflokkum.

Um 56% Íslendinga eru á móti innflutningi á fersku kjöti samkvæmt könnun MMR sem gerð var í apríl síðastliðnum. Þegar sú könnun er skoðuð sést hvar fólk af landsbyggðinni er meira á móti innflutningi en fólk af höfuðborgarsvæðinu. Einnig sést að eldra fólk er frekar á móti innflutningi en ungt fólk. 

Ólafur segir að það sé afskaplega furðulegt að sömu fyrirtækin sem séu nú að eyða fjármunum í að vara landsmenn við hættuna við að flytja inn erlent kjöt séu svo sjálf að flytja inn stóran hluta af innfluttu kjöti. Um 41% af öllum kvóta til innflutnings á kjöti er í höndum fyrirtækja sem eru í hópnum um örugg matvæli. 

Hér að neðan má sjá viðtal Sigmundar Ernis við Ólaf Stephensen: