Ömurlegur aðbúnaður aldraðra

 

Mynd sem Vigfús Ingvarsson birti á facebook-síðu Elllenar Kristjánsdóttur söngkonu í dag hefur vakið mikla athygli.

Á myndinni að ofan, sem tekin er á Landakoti, segir Ellen að aðbúnaðurinn sýni ástandið á stofnun fyrir aldraða sem fái þar aðhlynningu eftir veikindi. Ömurlegt ástand húsnæðisins hefur vakið miklar tilfinningar lesenda.

„Mig langar til að biðja alla sem hafa tækifæri til, að taka myndir sem sýna hvernig ástandið er í heilbrigðiskerfinu, líka þar sem allt er ok,“ skrifar Ellen á facebook-síðu sína.

Einnig mælist hún til að þeir sem eigi erindi í banka taki myndir þar.

„Það væri líka gott að taka myndir af matnum hjá (mötuneytum) þar sem ráðherrar og alþingismenn borða, jafnvel hjá borginni(Ráðhúsinu) taka myndir af mat hjá heimsendingaþjónustu eldri borgara og þeim sem dvelja á sjúkrastofnunum.“

Mælist Ellen til þess að facebook-vinir dreifi myndunum á félagsmiðlum. Í vakningar- og mótmælaskyni.