Hjálmar Hjálmarsson, einn þekktasti leikari þjóðarinnar, veltir því fyrir sér í færslu á fésbók hvort RÚV sé almennt hætt að talsetja barnaefni, hvort skerðing á útvarpsgjaldi sé nú þegar farin að segja til sín eða hvort það sé bara í tilefni jólanna?
„Á jóladag horfði ég á hina frábæru A matter of loaf and death með Wallace og Gromit á ástkærri og ylhýrri enskunni og í dag er hin stórkostlega All Dogs Cristmas Carol sýnd með áferðafallegu bandarísku tali,“ skrifar leikarinn.
„Það er kannski einhver misskilningur hjá mér en ég hélt að það væri stefna (og metnaður) RÚV að barnaefni væri á íslensku. Kannski er það eitthvað breytt. Allavega finnst mér þetta ömurlegt. Annars bara gleðileg jól!“
Í athugasemdum við færslu leikarans má m.a. lesa að þetta kunni að vera enn eitt skrefið í því að íslensk tunga lognist út af.
Frumvarp Illuga Gunnarssonar mennta- og menningarmálaráðherra komst ekki í gegn fyrir jól og munu því tekjur Rúv af nefskatti minnka – en reynt verður að staga í fjárhagsgatið að hluta með sérstökum styrk sem á að renna í innlenda framleiðslu. Ekki er víst að talsetning erlends barnaefnis falli undir það.