Safnstjóri Listasafnsins á Akureyri er hneykslaður yfir áherslum ríkisstjórnarinnar. Hann kallar stjórnina „menningarfjandsamlega stóriðjuþursa“.
Þessi orð lætur safnstjórinn falla þar sem hann tengir á fésbók við frétt Rúv um að Bandalagi íslenskra listamanna hafi verið synjað að koma á fund hjá fjárlaganefnd Alþingis tvö ár í röð. BÍL vill að framlög til menningar- og listamála verði hækkuð um hálfan milljarð.
„Við sitjum uppi með ömurlegustu ríkisstjórn allra tíma, menningarfjandsamlega stóriðjuþursa, öfgahægri íhaldsplebba, aftuhaldsgengi og spillta pabbastráka. Við verðum að losna við þetta lið sem fyrst,“ segir Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.
Hlynur er fyrrum varaþingmaður Vinstri grænna og virkur listamaður. Hann hefur verið safnstjóri á Akureyri um nokkra hríð. Hann er ekki eini listamaðurinn sem hefur hjólað í stjórnina vegna viðhorfs og eða skertra fjárframlaga. Skemmst er að minnast ádrepu Benedikts Erlingssonar leikstjóra sem notaði verðlaunaafhendingu til að koma mótmælum sínum á framfæri.
Í umsögn BÍL við fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra til fjárlaganefndar Alþingis segir að sú ákvörðun núverandi stjórnvalda að hverfa frá fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar hafi leitt til þess að listirnar í landinu hafi setið eftir. Fjármunir séu lagðir í eflingu annarra greina eins og ferðaþjónustu og markaðssetningu íslenskrar matvöru erlendis.
Samkvæmt frétt Rúv vilja listamenn að framlög til Kvikmyndasjóðs ein og sér verði hækkuð um 355 milljónir króna.
Einnig hangi framtíð listdansskóla nú bláþræði. Tugir nemenda séu í algjörri óvissu um hvort þeir geti lokið listnámi til stúdentsprófs.
Stjórn BÍL telur að staðan í kynningarmálum lista og menningar erlendis sé virkilega bágborin.