Íslendingar eru þyngri en nágrannaþjóðir sínar samkvæmt nýjustu mælingum. Rætt var um offitumál Íslendinga á fræðslufundi í dag hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þar var farið yfir tölur um offitu hjá börnum á Íslandi, rætt um offitu í tengslum við fíkn og áhrif auglýsinga og fjölmiðla á almenning.
„Okkur tekst ansi vel að fita börnin okkar,“ sagði Ragnar Bjarnason, prófessor og yfirlæknir Barnaspítala Hringsins, í erindi sínu á fræðslufundinum í dag. Hann segir fyrstu árin sérstaklega mótandi fyrir einstaklinga þegar það kemur að offitu.
Vissar forsendur séu nauðsynlegar fyrir einstaklinga til að verða of feitir. Sumir geti borðað mikið af óhollum mat án þess að það hafi áhrif á þyngd eða fitumagn einstaklings. Mikilvægt sé að huga að hreyfingu og borða frekar heimalagaðan mat en skyndibitamat.
„Ömmurnar verða alveg snar ef barnið er ekki að þyngjast en þær halda áfram að baka pönnukökurnar fyrir barnið sem borðar 10 til 15 og tekur alltaf við,“ sagði Ragnar og benti á að of oft hefðu foreldrar og ömmur og afar áhyggjur af því að barn nái ekki að þyngjast. Svo þegi fólk yfir því þegar barn væri orðið of þungt.
„Við erum gerð til að forðast það að svelta, sem hefur verið helsti fylgifiskur mannkynsins í gegnum árþúsundin. Við eigum erfitt með að verjast miklum mat,“ segir Ragnar.
Læknar sjá í dag mörg dæmi um forstig týpu 2 sykursýkis í börnum en það var sjaldgæft þegar Ragnar var að hefja sinn feril.