Ítarlegt viðtal er við Steingrím J. Sigfússon, alþingismann og fyrrverandi fjármálaráðherra, í Þjóðbraut Hringbraut í kvöld.
Þar kemur fram að Steingrímur gefur ekki mikið fyrir skýrsluna sem Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson kynntu í byrjun vikunnar. Hann telur fullt tilefni til að tilurð skýrslunnar verði rannsakað. Hann segir skýrsluna vera ómerkilegt klippiverk.
Steingrímur segir margt aðfinnsluvert í skýrslunni.
Viðtalið er ítarlegt og komið víða við.