Ómari sárnaði mjög handtakan

Þjóðsagnarpersónan Ómar Þ. Ragnarsson sem var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í gærkvöld segir að sér hafi sárnað mjög hvernig staðið var að handtöku hans í Gálgahrauni haustið 2013. Hann hafi í reynd verið niðurlægður og harkan hafi verið alltof mikil.


Þetta er meðal þess sem fram kom í þættinum í gær en þar ræddi Ómar í þaula hernaðinn á hendur náttúru Íslands - og honum var mikið niðri fyrir í þættinum. Engin önnur þjóð leyfi sér að eyðileggja dýrgripi sína með jafn einbeittum ásetningi og Íslendingum. Það ríki sannkallaður áltrúnaður á Íslandi og hagsmunir erlendra iðjuhölda séu alltaf teknir fram yfir náttúrugersemar Íslands.


Hann segist ekki enn skilja af hverju mótmælendur í Gálgahrauni voru beittir jafn miklu offorsi og raun varð á í september 2013. Stærsta skriðdreka landsins hafi verið stefnt þar að nokkrum elliífeyrisþegum og saklausum kennurum sem hafi sig hvergi hreyft eða haft í nokkrum hótunum. Her manna, vopnaður gasúða, barefli og kylfum hafi dröslað fólkinu inn í lögreglubíl þar sem því hafi verið bannað að nota öryggisbelti - og svo hafi tukthúsvistin tekið við. 


Ómar sagði í þættinum að árið sem þetta gerðist hafi akkúrat öld verið liðin frá því Ghandi var handtekinn fyrir sín friðsömu mótmæli og hann hafi haldið að afstaða yfirvalda væri orðin önnur en þá til friðsamlegra mótmæla. Svo væri greinilega ekki.


Eins og vænta má var líka slegið á létta strengi í þættinum þar sem ótrúlegar sögur voru látnar flakka, meðal annars af hrikalegustu akstursstund Ómars og atvikinu þegar hann varð hræddastur á ævinni.


Þátturinn var frumsýndur klukkan 20.00 í gærkvöld, en hægt er að sjá hann í heild sinni á hringbraut.is og einnig klippur úr honum.  Horfa á klippur úr þætti hér: