\"Við höfum heyrt þetta allt áður þegar átt hefur að fara í háhitavirkjanir,- \" lítil umhverfisáhrif, - snyrtileg mannvirki, - endurnýjanleg orka,- það verður að anna raforkuþörf, - bætt aðgengi, - misskilningur náttúruverndarfólks, - virkjanir og náttúruverðmæti fara vel saman o.s frv.\"
Þetta skrifar náttúruverndarsinninn Ómar Ragnarsson á bloggsvæði sitt í dag í tilefni af þeim áformum að virkja Eldvörp á reykjanesi, en þau hafa mætt mikilli andstöðu að undanförnu. Ómar segir að ofannefnd rök hafi allir heyrt út af Hellisheiði, við Reykjanes, Þeystareyki og Bjarnarflag: \"Og við vitum hvert framhaldið var, afleiðingarnar og það sem blasir við á þremur fyrstnefndu stöðunu eru enginn misskilningur,\" skrifar hann.
Hann segir forstjóra HS Orku stunda afvegaleiðandi blekkingar þegar hann lýsi tilraunaborununuum eins og þær einar marki endanlegt útlit heillar háhitavirkjunar: \"Hann minnist ekki einu orði á gufuleiðslurnar og háspennulínurnar, sem leggja þarf, og lætur eins og stöðvarhús og skiljuhús séu smámunir einir,\" skrifar Ómar og segir forstjórann tala eins og Svartsengisvirkjun hafi risið í núverandi stærð fyrir 30 árum, en það sé alrangt.
Forstjórinn tali að auki eins og þrýstingsfall sé ekki í myndinni í holum Svartsengisvirkjunar: \"Af hverju bregður þá svo við að hætt er að birta tölur um þrýstung í holum virkjunarinnar,\" spyr Ómar og bætir við. \"Nú liggja fyrir tölur sem benda til 4% þrýstingsfalls á ári í Reykjanesvirkjun, en 2,7% þrýstingsfall hjá Hellisheiðarvirkjun þykja mikið áhyggjuefni.\"
Hann minnir á að Íslendingar framleiði fimm sinnum meiri raforku en þeir þurfi til eigin heimila og fyrirtækja - og spyr svo: \"Hvers konar orkupólitík er það sem leiðir til raforkuskorts 2018? Ætli ekki sé sönnu nær að þá fari að blasa við, að hin margrómaða \"endurnýjanlega og sjálfbæra orkuöflun\" HS orku fer að dvína vegna rányrkju? Þetta er enginn \"misskilningur\". Hver rannsóknarhola kostar 560 milljónir. Fimm holur kosta hátt í 3 milljarða. HS orka ætlar sér varla að eyða þessu fé nema að fá eitthvað í staðinn? Auðvitað heila virkjun. Og munu þá segja, að ef náttúruverndarfólk ætli að standa í vegi fyrir því. beri það ábyrgð á þriggja milljarða tjóni.\"
Ómar minnir á að svipað hafi verið reynt við Laxárvirkjun 1970 þegar kaupa átti stax risatúrbínur fyrir stórstækkaða Laxárvirkjun og kenna andófsfólki um tjónið sem yrði ef þær yrðu ekki keyptar: \"1970 var raunverulegur en ekki tilbúinn skortur á raforku handa heimilum og fyrirtækjum á Norðurlandi. En \"Túrbínutrixið\" var afhjúpað og sprengt framan í þá sem beittu því. Enn meiri ástæða er því til að andæfa nú og koma strax í veg fyrir það tjón sem er í uppsiglingu við Eldvörp,\" skrifar Ómar Ragnarsson á bloggsvæði sitt í dag.