Ómar úlfur edrú: „það er öllum hollt að skoða sjálfan sig“

Útvarpsmaðurinn Ómar Úlfur hefur verið edrú í ellefu ár núna og segir í viðtali við Dv að það sé öllum hollt að fara í sjálfskoðun.

„Það er öllum hollt að skoða sjálfan sig. Ég þekki það sjálfur úr mínu lífi og verð að horfast í augu við að ég var einu sinni algjör hálfviti.“

Síðan hann hætti að drekka hafi hann reynt að bæta upp fyrir syndir sínar og gera sjálfan sig betri. Eitt af því sé að vera ánægðari með lífið og tilveruna.

„Það er miklu orkufrekara að vera í fýlu en að vera jákvæður.“

Hann er sérstaklega ánægður með það að ekki hafi allir verið með myndavélasíma þegar hann stundaði skemmtanalífið af fullum krafti.

„Ég segi bara Guði sé lof að ekki voru til myndavélasímar eða samfélagsmiðlar þegar ég var sem verstur í mínu djammlífi.“

Þetta segist hann hafa hugsað þegar sonur hans hafi verið að „gúgla“ foreldra sína.

„Þá hugsaði ég bara „Djöfull er ég feginn að ekki sé til einhver grein þar sem stendur „Ómar Úlfur hellaður á B5 eða Austur, standandi ber að neðan uppi á einhverju borði.“ Internetið gleymir engu og þarna slapp ég vel.“