Einn reyndasti og virtasti fjölmiðlamaður þjóðarinnar, Ómar Þ. Ragnarsson lætur stjórnvöld fá það óþvegið í nýjasta pistli sínum á vefnum sem fjallar um málefni albönsku flóttafjölskyldunnar; þar hafi fjandsamleg lög verið sett framar mannúð og velvilja.
Ómar segir að stjórnmál séu list hins mögulega - og vel að merkja, mannanna verk: \"Nú er svo að sjá að lögfesting barnaverndarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, hafi skyldað íslensk stjórnvöld til að veita tveimur veikum börnum aðstoð hér á landi frekar en að fara með þau og nánustu ástvini þeirra í lögreglufylgd eins sakamenn úr landi,\" byrjar Ómar pistil sinn og skrifar svo: \"Í staðinn fyrir að lög um réttindi barna séu látin ráða, eru önnur lög og reglugerðir, fjandsamleg þessu fólki, látin ráða för.\"
Ómari er niðri fyrir: \"Málið lyktar af mistökum í stjórnsýslu í andrúmslofti andúðar á útlendingum, sem viðkomandi ráðherra átti að vísu ekki beina sök á, en verður að vonast til að hún beiti sér fyrir að verði breytt eftir þeim leiðum sem hljóta að vera færar og hægt að fara, miðað við lög um réttindi barna,\" skrifar Ómar og minnir á fræg ummæli Davíðs Oddssonar forsætisráherra, þegar þáverandi fjármálaráðherra vildi láta ríkissjóð seilast í tekjur barna af útburði dagblaða: \"Svona gera menn ekki\" sagði Davíð þá og málið var dautt.