Ómar segir orð sigmundar billeg

Eins og Hringbraut sagði frá í gær staðhæfði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í gær að erlendar þjóðir hlustuðu á Íslendinga þegar við tjáðum okkur um orku- og umhverfismál því enginn stæði sig betur á því sviði en við. Lesa má um það hér.

Ómar Ragnarsson umhverfissinni svarar forsætisráðherra í bloggpistli og bendir á að það hafi verið olíukreppa sem rak Íslendinga til að fara út í hitaveitur og gufuaflsvirkjanir við Kröflu og síðar á Nesjavöllum.

„Þótt með þessu væri stórlega dregið úr notkun jarðefnaeldsneytis hefði þetta þó vart verið gert nema vegna þess að hin innlenda orka var miklu ódýrari og sparaði þar að auki gjaldeyri.

Síðan þessi miklu umskipti byrjuðu fyrir alvöru eru liðin 35 ár og því er það ansi billegt að gaspra nú: \"Það stendur sig enginn betur en Íslendingar.\"

Ómar segir að í aðdraganda Hrunsins hafi Ísland komið sér upp „mest mengandi bílaflota í okkar heimshluta og erum aftarlega á merinni við að vinda ofan af því“. Því fari fjarri að þjóðin standi undir þeirri síbylju fullyrðingu að enginn standi sig betur en Íslendingar um þessar mundir við að minnka notkun jarðefnaeldsneytis fyrir bíla- og skipaflotann.

„Það er líka billegt að kasta sér á bak við heildarstefnu ESB og Noregs varðandi 40% minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda þegar ekki er vitað hvað kemur út úr því hvað varðar okkur sérstaklega,“ skrifar Ómar Ragnarsson.