Ómar ragnars reynir við íslandsmet

Ómar Ragnarsson, fjölmiðla-og ævintýramaður ætlar á morgun, þriðjudag, að reyna setja nýtt Íslandsmet - fara lengstu vegalengd sem rafknúið hjól hefur farið á einni hleðslu. Ómar ætlar að reyna að fara á hjólinu frá Akureyri til Reykjavíkur.
 

Ómar setti færslu um þetta á Facebook-síðu sína í morgun.

Ferðlagið nefnist Aðgerðin Orkuskipti en undirbúningur hefur staðið í hálft ár: \"Hjólað verður á rafknúna reiðhjólinu Sörla sem Gísli Sigurgeirsson rafeindavirki á og hefur útbúið, en fram að þessu hefur hjólið Náttfari verið notað mest í tilraunaferðum,“ skrifar Ómar. 

Mettilraunirnar eru fimm; lengsta vegalengd, sem rafknúið hjól hefur komist á einni hleðslu fyrir rafafli eingöngu án þess að skipa út rafgeymum, lengsta vegalengd sem rafknúið hjól hefur komist fyrir rafafli eingöngu í einni samfelldri ferð, án þess að skipta út rafgeymum, lengsta vegalengd sem rafknúið hjól hefur komist á minna en sólarhring  fyrir rafafli eingöngu án þess að skipta út rafgeymum, fyrsta ferð rafhjóls fyrir rafafli eingöngu alla leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur og ódýrasta orkunotkun farartækis í einni ferð milli Akureyrar og Reykjavíkur.

Ómar fór tilraunaferð í júlí frá Akureyri - þá komst hann upp í efri Bakkaselsbrekku, nálægt háheiði Öxnadalsheiði. Þar ofhitnaði mótórinn og sló út rafmagninu - án þess að eyðileggjast.