Ómar ragnarsson var í brussel

Ómar Ragnarsson fréttamaður og umhverfissinni var meðal Íslendinga sem voru staddir í Brussel í morgun þegar hryðjuverkasprengjurnar voru sprengdar. Þetta koma fram í viðtali Stöðvar 2 í hádegisfréttatíma við Þorfinn Ómarsson. Hann sagði daginn hafa hafist með því að hann og foreldrar hans vöknuðu til að skutla Ómari og eiginkonu í flug frá Brussel til Íslands. Sú vél kom aldrei, enda öllu flugi aflýst í kjölfar hryðjuverkanna.

Lamandi ótti er í Belgíuog hafa fjölmiðlar gagnrýnt yfirvöld vegna þess að öryggi íbúa hafi ekki verið verndað. Íbúar eru hvattir til að halda sig heima, fjarskipti eru í molum og mikil óvissa. Búist er við vaxandi öryggisgæslu í Brussel.

Næst er fyrirhugað flug frá Íslandi til Brussel á fimmtudag. Icelandair aðstoðar nú íslenska farþega sem áttu bókaðar ferðir til  Íslands í gegnum flug frá öðrum löndum en Belgíu.

Ekki er vitað til að neinn Íslendingur hafi slasast en fjöldi látinna nú er um 30 manns.