Ómar ragnarsson talar um æskuárin

Ómar Ragnarsson verður í viðtali í kvöld á Hringbraut í þættinum \"Blik úr bernsku\" sem sýndur er kl. 21.00 og endursýndur kl. 23.00.

Ómar Ragnarsson ólst upp í Skipholtinu í Reykjavík og á margar minningar um fólkið sem bjó þar, bæði ríkt frægt fólk og drykkfellt ólánsamt.

Hann segir m.a. frá bankastjórakjól móður sinnar, sem fór alltaf í sama fína kjólinn þegar hún hitti borgarstjórann, sem hún þekkti vel, eða bankastjórann þegar hún þurfti fyrirgreiðslu. Og lét ekki smámuni stoppa sig í slíkum ferðum.