Það eru mörg rök fyrir Reykjavíkurflugvelli og svokölluð öryggisbraut er afar mikilvæg. Þetta segir Ómar Ragnarsson sem hefur flogið allt frá á árinu 1965 í viðtali við Björn Þorláksson á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld.
Ómar setur sig í spor hins almenna Íslendings úti á landi í viðtalinu og telur byggðaröskun geta fylgt niðurlagningu flugbrauta þar sem þær eru nú. Ómar telur hagsmuni höfuðborgarbúa eigi að síður ótvíræða að hafa Reykjavíkurflugvöll áfram, a.m.k. einhverja áratugi lengur.
Í Kviku Björns Þorlákssonar í kvöld mun Hallgrímur Óskarsson verkfræðingur einnig ræða ímyndarmál sveitarfélaga. Munu Bíladagar á Akureyri meðal annars koma til umræðu en sú hátíð er afar umdeild vegna hraðaksturs og ónæðis sem íbúar verða fyrir.
Kvika Björns Þorláks hefst klukkan 20.30 í kvöld. Þátturinn verður endursýndur tveimur tímum síðar auk þess sem hægt er að nálgast Kvikuna á tímaflakki sem og vefnum hringbraut.is síðar.