Ómar Ragnarsson hinn eini og sanni segir að það hafi tekið sig hálfa öld sem bíleiganda að skilja að snjósköfur eiga ekki alltaf við heldur er kústurinn galdratækið þegar losa þarf snjó af bílum.
„Skaust út í 10 mínútur í kvöld til að nota undratæki, sem heitir kústur, til að gera gangstíga í snjó og moka af tveimur bílum. Tíu sinnum fljótara að nota kúst en snjósköfu til að hreinsa bíl, og \"fínpússa\" síðan með sköfu á eftir,“ segir Ómar Ragnarsson.
Hann segist fyrst hafa uppgötvað þessi vísindi eftir að hafa átt bíl í hálfa öld, líka það að hafa þurrkurnar uppréttar þegar bíllinn stendur kyrr.
Um þetta hefur Ómar ritað bloggpistil en geta má þessa að víða úti á landi hafa ökumenn lært að lyfta rúðuþurrkum þegar þær eru ekki í notkun, en illa getur farið ef þær festast við rúðuna auk þess sem erfiðara getur orðið að skafa – eða sópa!
Þannig er svo eitt dæmi sé tekið rík hefð fyrir því að Akureyringar lyfti rúðuþurrkum og noti kústa en sannarlega eru þeir í meiri æfingu en höfuðborgarbúar þegar kemur að glímunni við snjóinn!
Veltur mjög á hitastigi og þéttleika snjósins hvaða tæki hentar best í hvaða tilfellum eftir því sem Akureyringar herma.