Hljómsveitin hefur komið fram vítt og breitt um Bandaríkin, Evrópu, Japan og Ástralíu síðan platan kom út í júní. Þessari nýju afurð sveitarinnar hefur verið vel tekið að því er fram kemur í frétt RÚV um velgengni sveitarinnar en þar segir að nýja platan hafi farið beint í þriðja sætið á bandaríska Billboard-listanum og lög á borð við Crystals hafi notið nokkurra vinsælda.
Á miðvikudag hófst aðaltónleikaferðalagið þar sem sveitin sjálf og lög hennar eru í aðalhlutverki - svokallaður „headline tour\" eins og það heitir víst á fagmálinu, svo áfram sé vitnað í vef RÚV.
Fyrstu tónleikarnir voru í Calgary í Kanada en sveitin kemur fram í Marymoor Park í Redmond í kvöld - hún verður síðan á nánast stanlausu ferðalagi um Norður-Ameríku og Evrópu ef undanskilið er tæplega mánaðarfrí sem sveitin tekur sér eftir að hafa spilað á tónleikum í Hörpu um miðjan næsta mánuð.
Liðsmenn sveitarinnar ferðast á þessum tíma rúmlega 45 þúsund kílómetra leið - til samanburðar má nefna að ummál jarðar er 40 þúsund kílómetrar.
Dugnaður sveitarinnar hefur vakið athygli - þannig greindi bandaríska viðskiptatímaritið Forbes frá því í vikunni að meðalverð miða í endursölu á tónleika sveitarinnar hefði hækkað um 14 prósent frá síðustu tónleikaferð. Það mætti þakka mikilli eftirspurn og þátttöku hennar á tónlistarhátíðum. Til að mynda hefðu miðar á tónleika hennar í Chicago eftir Lollapalooza -hátíðina selst á 100 þúsund íslenskar eða 737 dollara.