Ólýsanleg grimmd kúabónda úti á landi

Hörð viðbrögð hafa orðið við frétt sem Fréttatíminn birtir og segir af einhverju fólskulegasta dýraníði sem sögur fara af í seinni tíð, úti á landi.

Dýralæknir sem Hringbraut hefur rætt við segir að ekki sé um bónda í Eyjafirði að ræða líkt og sagði fyrst í frétt Hringbrautar heldur á Norðvesturlandi.

Í frétt Fréttatímans segir m.a.:

\" Í kjölfarið brá bóndinn snörunni um háls kvígunnar og batt hana aftan í jeppann. Hann ók síðan af stað og kvígan gekk á eftir stuttan spöl en lagðist síðan aftur. Við það fóru maðurinn og sambýliskona hans út úr bílunum og tóku girðingarstaura úr rafmagnsgirðingu sem lágu í öðrum jeppanum og hófu að berja skepnuna, uns hún stóð upp. Aftur lagðist kvígan. Aftur var hún barin en í þetta sinn stóð hún ekki upp. Í stað þess að stöðva bílinn ók bóndinn áfram og alla leið að fjósinu, með kvíguna hangandi á hálsinum aftan í bílnum. Dóttir hans var í bíl fyrir aftan, ásamt sambýliskonu föður síns. Hún þrábað hana að grípa inn í en allt kom fyrir ekki. Þegar bóndinn stöðvaði bifreiðina var kvígan dauð.\"

Bóndinn er ekki nafngreindur í frétt Fréttatímans sem er ítarleg og má lesa alla hér.