Skemmtiferðaskip hafa ekki lagalega heimild til að brenna svartolíu í kringum landið.
Þeim er hins vegar heimilt að brenna annað hvort dísilolíu eða gasolíu og þar sem sú síðarnefnda er mun dýrari má gera ráð fyrir að úti á sjó sé fyrst og fremst verið að brenna dísilolíu. Þegar skemmtiferðaskipin liggja við bryggju gildir hins vegar að þar má einungis brenna gasolíu og nær það raunar til allra skipa. Reyndar mæla reglur svo fyrir að skipum beri að nýta sér rafmagn við þær aðstæður, sé hægt er að koma því við.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun í dag af því tilefni að heyrst hafi í fjölmiðlum að skipin hafi leyfi til brennslu svartolíu með tilheyrandi mengun.
Umhverfisstofnun fær reglulega upplýsingar frá höfnum landsins um eldsneyti skipa sem hér koma til hafnar og ekkert í þeim gögnum bendir til að skipin séu að brenna svartolíu við bryggju, segir í tilkynningunni.
Einnig er bent á að reglur um olíunotkun séu rýmri þegar kemur að fiski- og flutningaskipum, en þau megi brenna svartolíu að vild í kringum landið og dæmi séu um ný skip í íslenska fiskiskipaflotanum sem útbúin eru til að brenna svartolíu.