Ólöf Nordal innanríkisráðherra vill afnema mannanafnalög. Frumvarp er í smíðum í ráðuneytinu sem mun þó líklega ekki ganga svo langt. Ráðuneytið gerði könnun til að kanna viðhorf fólks til nefndarinnar og vill meirihluti rýmka reglurnar.
„Helst af öllu vil ég afnema mannanafnalög,“ sagði Ólöf í Bítinu á Bylgjunni í morgun um þá vinnu sem verið hefur í gangi vegna nefndarinnar. Hún segist lengi hafa verið þeirrar skoðunar að endurskoða þurfi lögin: \"Ég held að það eigi að vera þannig að foreldrar eigi að ákveða sjálfir hvað börnin þeirra eigi að heita.“
Það sem helst virðist standa í vegi fyrir því að fólk vilji ganga jafnlangt og Ólöf kýs er varnaglinn að fólk geti ekki nefnt börn sín nöfnum sem geti komið þeim illa, segir í frétt Vísis um þessa skoðun ráðherra. Hvað ef foreldrar ákveða að skíra barn sitt Satan? Ólöf spyr á móti hvort sömu foreldrum sé þá treystandi til að ala upp börnin sín. Eiga þau ekki alltaf að hafa hag barnanna að leiðarljósi? Önnur lög, svo sem barnalög, gætu komið til kastanna ef þannig mál kæmu upp.
Ólöf nefnir til sögunnar fjölmörg mál sem vakið hafa athygli hennar og annarra hér á landi undanfarin misseri. Stúlkunafnið Blær fékkst loks samþykkt eftir að hafa farið alla leið fyrir héraðsdóm og svo er nærtækt dæmi hin unga Harriet sem fær ekki vegabréf hér á landi vegna nafns síns.