Gríðarlegur þrýstingur hefur skapast á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varaformann Sjálfstæðisflokksins, að hætta við að bjóða sig áfram til varaformanns á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst eftir rúmar þrjár vikur. Í yfirlýsingu sem tíu núverandi og fyrrverandi forystumenn Sjálfstæðisflokksins víða um land hafa sent er skorað á Ólöfu Nordal að bjóða sig fram til varaformanns. Nöfn þeirra tveggja hafa einkum verið í umræðunni til þessa eins og sagt var frá í fréttaskýringu Hringbrautar á dögunum.
„Án þess að á nokkurn sé hallað teljum við Ólöfu vera hæfasta sjálfstæðismannin á landinu öllu til að leiða flokkinn, ásamt Bjarna Benediktsyni formanni, segir m.a. í stuðningsyfirlýsingu tímenninganna. Þeir eru Ásbjörn Óttarsson, fyrrverandi alþingismaður, Snæfellsbæ, Ásdís Snót Guðmundsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Arnarfjarðar, Berglind Sigurðardóttir, formaður Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði, Böðvar Sturluson, Stykkishólmi, formaður kjördæmasamtaka ungra sjálfstæðismanna í NV kjördæmi, Guðmundur Jón Helgason, formaður Sjálfstæðisfélags Seltirninga, Hafdís Gunnarsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Ísafjarðar, Hjörtur Sigurðsson, formaður Sjálfstæðisfélagsins á Patreksfirði, Magni Þór Harðarson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, Pétur Ottesen, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akranesi og Sölvi Sólbergsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík.
Í samtali við Hringbraut sagði Hanna Birna fyrir nokkrum dögum vegna þeirrar kröfu sem uppi er í flokknum að hún láti lítið á sér bera eftir að hún neyddist til að segja af sér sem ráðherra í kjölfar lekamálsins, að í hennar huga teldi hún sig ekki þurfa frekari ,,pólitíska kælingu\". Hún væri þó heldur ekki persónulega á þeim stað að sækjast sérstaklega eftir frekari pólitískum átökum eftir það sem á undan væri gengið. Sagði í fréttaskýringunni að viðbúið væri að Hönnu Birnu myndu bíða nöturleg skilaboð á Landsfundi ef hún héldi því til streitu að bjóða sig fram.
Heimildir Hringbrautar herma að eftir því sem fleiri skori opinberlega á Ólöfu verði að teljast æ ólíklegra að Hanna Birna taki slaginn. Síðast fékk hún 97% stuðning til embættis varaformanns á Landsfundi og einnig töluverðan stuðning í formannsembætti flokksins.