Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, beindi á þingi í morgun óundirbúinni fyrirspurn til innanríkisráðherra vegna deilna á vinnumarkaði, jafnt í einkageira sem hinum opinbera. Hún sagði vinnumarkaðsdeilur hafa einkennt tíð ríkisstjórnarinnar. Hún ræddi einkum hvernig þrengt hefði verið að kjörum lögreglu en á sama tíma væri stóraukinn fjöldi ferðamanna á landinu sem kallaði á aukið annríki þeirra.
Katrín sagði að þrátt fyrir að þverpólitísk sátt væri innan Alþingis um þessa staðreynd náist endar ekki saman hjá stétt lögreglumanna sem ekki hefði verkfallsrétt. Nú stæðu enn ein átökin yfir og vildi þingmaðurinn vita hvernig Ólöf Nordal innanríkisráðherra hygðist leysa þennan hnút? Innanríkisráðherra svaraði að ekki væri deilt um að efla bæri löggæslu.
Katrín sagði þá að ekki væri reiknað með kjarahækkun í fjárlagafrumvarpi og þingmenn fyndu mjög fyrir reiði lögreglumanna. Krafði hún Ólöfu Nordal svara hvort hún styddi verkfallsrétt lögreglumanna.
Ólöf svaraði að starf lögreglumanna væri með þeim hætti að betra væri að hagur þeirra væri tryggður með samningum fremur en að þeir fái verkfallsrétt.