Ólöf Nordal, innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, verður gestur Þjóðbrautar, í aukaþætti sem sendur verður út klukkan 21:00 í kvöld, föstudagskvöld.
Ólöf ræðir þar um Reykjavíkurflugvöll, flóttafólk, ríkisstjórnina, eigin heilsu, vegakerfið, Panamaskjölin og margt annað.
Einsog vitað er er Ólöf ráðherra án þess að vera kjörin til setu á Alþingi. Hún talar einnig um þá stöðu, breytingar á Alþingi og ýmislegt annað.
Sem fyrr segir er Þjóðbraut á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.