Ólöf Nordal innanríkisráðherra vann fyrir Landsvirkjun á sama tíma og eiginmaður hennar starfaði hjá Norðuráli um samninga um kaup á orku og hráefnum. Umræða um hæfi og vanhæfi ráðamanna vegna tengsla við maka eru áberandi í umræðunni og ein afþeim spurningum sem hafa kviknað er hvort vanhæfi kunni að hafa skapast milli Ólafar og eiginmanns þar sem hún hafi verið opinber starfsmaður en hann í einkageiranum. Að hugsanlega hafi Ólöf tekið ákvarðanir sem yfirmaður hjá Landsvirkjun sem nýttust eiginmanni hennar eða félagi hans en hann vann að innkaupum álfyrirtækja á rafmagni á sama tíma og hún vann hjá Landsvirkjun við heildsöluviðskipti.
Á heimasíðu Alþingis má lesa um starfsferil Ólafar Nordal núverandi innanríkisráðherra. Þar segir að hún var \"Yfirmaður heildsöluviðskipta hjá Landsvirkjun 2002-2004\". Á sama tíma starfaði eiginmaður hennar hjá Norðuráli og sá þar m.a. um “samninga um kaup á orku og hráefnum” eins og sagði í fréttatilkynningu þegar tilkynnt var að hann sem fyrrum framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Norðuráls á Grundartanga hefði verið ráðinn forstjóri Fjarðaáls, álvers Alcoa í Reyðarfirði. Hann tók við forstjórastarfinu hjá Fjarðaáli 1. mars árið 2004 en hafði sem fyrr segir áður unnið hjá Norðuráli frá árinu 1997 og sinnt þar margvíslegum verkefnum.
„Bygging Fjarðaáls er mikilvægur liður í stefnu Alcoa um aukin umsvif á sviði álvinnslu. Reynsla Tómasar Más af því að stýra verkefnum hjá Norðuráli, í tengslum við byggingu og stækkun álvers fyrirtækisins, umhverfismat, og samninga um kaup á orku og hráefnum mun án efa nýtast honum í starfi forstjóra Fjarðaáls,\" sagði Mike Baltzell, yfirmaður álvinnslusviðs Alcoa, í fréttatilkynningu snemma árs 2004.
Orkusölusamningar við bandaríska álfyrirtækið Alcoa voru undirritaðir í mars 2003. Á þeim tíma og áður var Ólöf yfirmaður viðskipta hjá Landsvirkjun en þó ekki þeirra viðskipta sem gerðu hana vanhæfa að hennar sögn. Hún hafnar því að hagsmunaárekstur hafi orðið þegar eiginmaður hennar sá um kaup og orku á hráefnum fyrir Norðurál en hún stóð við söluborðið fyrir hönd Landsvirkjunar.
\"Ég var í þeim hluta starfseminnar sem sinnti sölu til veitna og almennra fyrirtækja. Það var kallað sala á almennan markað, stóriðjumarkaður var þar utan við,\" segir Ólöf í svari við fyrirspurn Hringbrautar um málið.
Hún segist aldrei hafa gert viðskipti við stóriðjur. \"Sala til stóriðja var á höndum annarra og ég kom aldrei nálægt gerð slíkra samninga,\" segir Ólöf Nordal innanríkisráðherra. \"Það kom aldrei til að ég væri nokkurn tímann hluti af nokkrum atriðum er varðaði þessa samningagerð enda mínu starfi óviðkomandi.\"
Ólöf segir að fljótlega eftir að Tómas eiginmaður hennar hafi verið ráðinn til Alcoa hafi hún sjálf sagt upp störfum hjá Landsvirkjun. Hún varð þingmaður nokkru síðar.
-BÞ