Meðferðin við krabbameininu gekk vel

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra segir að krabbameinsmeðferðin sem hún undirgekkst fyrir skömmu hafi gengið vel og að hún sé nú búin að ná fyrra starfsþreki.

Þetta kom fram í einkar persónulegu og yfirgripsmiklu samtali sem Páll Magnússon átti við Ólöfu í þættinum Þjóðbraut á Hringbraut í gærkvöld, en ráðherrann sem var óvænt valinn í ríkisstjórnina í stað Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem varð að segja af sér seint á síðasta ári fór mjög víða í viðtalinu og talaði þar skýrt og ákveðið um mörg pólitísk álitamál á hennar borði.

Ólöf Nordal segist ekki vera í hópi þeirra sem vilja endurskoða aðild Íslands að Schengen-samstarfinu. Og hún vill Reykjavíkurflugvöll áfram á sínum stað: \"Það verður ekki byggt í fluglínu neinnar flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli nema að sérstök ákvörðun verði tekin um slíkt og þannig ákvörðun hefur ekki verið tekin,\" sagði hún meðal annars í viðtalinu sem hægt er að nálgast á hringbraut.is eins og allt annað efni sjónvarpsstöðvarinnar.

Þjóðbraut er frumsýnd í haust og vetur klukkan 21:00 á miðvikudagskvöldum.