Ólöf næsti varaformaður

Fátt virðist koma í veg fyrir að Ólöf Nordal verði næsti varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Ólöf tilkynnti ákvörðun sína um framboð með blaðamannafundi sem hún hélt á heimili sínu í dag. Síðustu daga hafa hlutir gerst hratt, en skammt er síðan Hanna Birna Kristjánsdóttir féll frá ákvörðun sinni um að halda varaformannsframboði til streitu. Skömmu áður hafði fjöldi stuðingsmanna Sjálfstæðisflokksins lýst stuðningi við Ólöfu en hún þykir hafa komið sterk inn sem innanríkisráðherra eftir að Hanna Birna sagði af sér vegna lekamálsins.

Sjálfstæðismenn sem Hringbraut hefur rætt við í morgun telja að Ólöf sé líkleg til að auka traust á flokknum og afla nýs fylgis, ólíkt því sem hefði orðið með varaformannskjöri Hönnu Birnu. Þó er haft á orði að það sé „athyglisvert“ að Ólöf fái sitt brautargengi á silfurfati, en aðrir telja að stjórnkænsku Bjarna Benediktssonar sé að þakka hve „farsællega“  virðist ætla að takast að leysa úr erfiðri stöðu eftir að Hanna  Birna gerði þau mistök að telja að flokksmenn hennar myndu kjósa hana sem varaformann. Hefur verið róið að því öllum árum að koma í veg fyrir „neyðarlegt einvígi þeirra tveggja á millum“ eins og það er orðað eftir því sem heimildir Hringbrautar herma. Staða Hönnu Birnu er sögð mjög veik innan flokksins og hefur Ólafur Arnarson sagt að engin dæmi séu um aðra eins atlögu innan flokksins að sitjandi þingmanni og síðustu daga.

Ólöf vísar sjálf til þess með rökstuðningi ákvörðunar sinnar að staða Sjálfstæðisflokksins mætti vera betra samkvæmt skoðanakönnunum. Hún segist allt eins eiga von á mót­fram­boði enda séu all­ir í fram­boði á Lands­fundi.

Heimildir Hringbrautar herma þó að enginn muni geta ógnað Ólöfu, búið sé að kanna baklandið og að Ólöf muni hljóta yfirburðakosningu sem nýr varaformaður Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi sem fer fram eftir tæpar þrjár viku.

Viðurkennt er að atburðarás síðustu daga hafi að vokkru verið hönnuð. Það hafi þurft til að „hreinsa andrúmsloftið og skapa betri framtíðarmöguleika“ eins og einn áhrifamaður innan Sjálfstæðisflokksins orðaði það í samtali við Hringbraut.

(Fréttaskýring: Björn Þorláksson)