Ólöf með bakþanka í albaníumálinu

\"Ef vantraust skapast í svo viðkvæmum málum sem varðar líf fólks og farsæld er okkur mikill vandi á höndum. Ég hlusta eftir því og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að byggja upp traust,“ sagði Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, í hugvekju á jólavöku Hafnarfjarðarkirkju í gærkvöld.
 
Til hennar er vitnað á fréttavef RÚV í gærkvöld, en Ólöf sagði í hugvekju sinni það vera lykilatriði að byggt væri upp traust í málefnum flóttamanna.

Eins og segir í fréttinni hafa öll spjót beinst að Ólöfu Nordal síðustu daga eftir að tveimur albönskum barnafjölskyldum var vísað af landi brott í síðustu viku. Ólöf sagði í samtali við fréttastofu RÚV fyrr í vikunni að hún hefði engar heimildir haft til að breyta úrskurðum Útlendingastofnunar eða veita fólki dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Hún gerði mál fjölskyldnanna tveggja að umtalsefni í ræðu sinni í gærkvöld.

\"Ég get ekki staðið hér í dag – á tíma þar sem við minnumst komu frelsarans og fyllum hjarta okkar kærleika til náungans án þess að hugsa til þeirra sem hingað hafa komið að leita skjóls og hafa ekki fallið að því kerfi sem við höfum búið okkur,“ sagði Ólöf en benti á að þótt ráðherrar fylgi lögum hafi þeir líka stefnumarkandi hlutverk. Alþingi hafi lokaorðið um hvernig búið sé um hnútana hér á landi.

Í frétt RÚV er haft eftir henni að það sé ekki hlutverk ráðherra að fara inn í einstök mál og breyta ákvörðunum án þess að hafa vald til þess með beinum hætti. Það kalli á geþóttaákvarðanir, sem hún gæti aldrei sætt sig við. 

Mál albönsku fjölskyldnanna snerti hana þó djúpt: \"Í því máli sem hátt hefur borið undanfarna daga, í málefni barna með sjúkdóma sem nú eru farin til heimalandsins, hef ég ekki lokað augum mínum. Ég stend ekki þegjandi hjá,“ sagði Ólöf. Kerfið verði að tryggja öllum jafnan rétt að lögum.

\"Þessi viðkvæmu kerfi, kerfi alþjóðlegrar verndar, byggð á alþjóðlegum sáttmálum um málefni flóttamanna, verða að tryggja jafnræði, verða að vinna hratt og vel, passa að þeir sem eigi rétt á vernd fái hana, en þeir sem vilja flytjast hingað, til dæmis í leit að betra lífi, fari úr þessum farvegi í annan. Og að sjálfsögðu verður að tryggja að farið sé eftir lögum um málefni barna í öllum tilvikum,“ segir innanríkisráðherra sem kveðst harma þá ákvörðun að mál fjölskyldnanna hafi ekki farið til úrskurðarnefndar, heldur hafi meðferð þess lokið á fyrra stigi stjórnsýslu.