Heimasíðu Seðlabanka Íslands var breytt í dag eftir að frétt birtist á hringbraut.is þess efnis að þar væri Ólöf Nordal innanríkisráðherra enn skráð formaður bankaráðs, rúmum þremur mánuðum eftir að hún settist á ráðherrastól. Á síðunni segir nú að Jón Helgi Egilsson sé starfandi formaður stjórnar bankans. Eins og fram kom í fyrri frétt hringbrautar.is um málið hafa stjórnarflokkarnir ekki enn komið sér saman um það hver eigi að setjast í stól bankaráðsformanns eftir að Ólöf gaf embættið frá sér; sjálfstæðismenn hafa samkvæmt heimildum haldið nafni Tryggva Þórs Herbertssonar fyrrverandi þingmanns flokksins á lofti, en framsóknarmenn hafa þvertekið fyrir að hann fái starfann.
Ólöf loks tekin út sem formaður
Fleiri fréttir
Nýjast