\"Ólöf Nordal er búin að kasta fyrstu bombunni inn á landsfund Sjálfstæðisflokksins,\" skrifar þjóðmálarýnirinn Ólafur Jón Sívertsen í nýju pistli sæinum á Hringbraut, en landsfundurinn hefst þann 22. október.
\"Með þessari yfirlýsingu 2 mánuðum fyrir landsfund ætlar hún að kanna stuðning og stöðu sína innan flokksins,\" skrifar Ólafur Jón sem þekkir gjörla til innviða hægriflokksins, svo og allrar íslenskrar stjórnsýslu. Hann segir að þótt endurvinnsla á stjórnmálamönnum hafi hvergi gefist vel sé nú hart lagt að Ólöfu af hálfu forystu flokksins að gefa kost á sér:
\"Flokkurinn er í mikilli krísu út af varafromannsmálinu. Hanna Birna er ennþá varaformaður! Ekki má gleyma því þó hún láti sem minnst fyrir sér fara, af skiljanlegum ástæðum. Hún hefur ekki sagt neitt annað en að hún ætli að halda áfram sem varaformaður,\" skrifar Ólafur Jón og bendir á að ákveði klíka innan flokksins geti ekki hugsað sér að missa Hönnu Birnu úr forystu flokksins: \"Þessir stuðningsmenn svífast einskis og hugsa einungis um eigin hag en ekki flokksins. Þannig viðhorf einkenna Hönnu Birnu einnig. Þeir sem “bjuggu Hönnu Birnu til” sem stjórnmálamann eru þeir Björn Bjarnason og Kjartan Gunnarsson. Þeir ætluðu að gera hana að formanni og fjarstýra síðan flokknum gegnum hana. Þessi ráðagerð þeirra fór vissulega út um þúfur en þeir eru þekktir fyrir annað en að gefast upp. Þeir munu leggja ofuráherslu á að Hanna Birna berjist áfram fyrir sæti sínu sem varaformaður. Helstu bandamenna þeirra eru Styrmir Gunnarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Friðrik Friðriksson og Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrum dómari.\"
Ólafur Jón segir að Ólöfu hugnist ekki varaformsnnsslagur. Með yfirlýsingu sinni um helgina að hún vilji skoða hvort hún bjóði sig fram til varaformanns sé hún að knýja fram svör frá öðrum varðandi varaformennsku. Hún taki ekki við embættinu nema í friði, enda \"alin upp á heimili þangað sem valdið kom átakalaust,\" skrifar Ólafur Jón.