Ólöf hvött í varaformanninn

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna og sjálfstæðisfélögin á Seltjarnarnesi hvetja Ólöfu Nordal, innanríkisráðherra, til að gefa kost á sér til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins.
 
Fyrr í þessum mánuði hvatti Sjálfstæðisfélagið í Langholtshverfi Ólöfu til að gefa kost á sér. Heimildir Hringbrautar herma að verið sé að kanna hug fleiri hverfafélaga í þessum efnum á höfuðborgarsvæðinu.
 

Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem er varaformaður flokksins, sagði af sér eftir lekamálið svokallaða. Hún er nú formaður utanríkismálanefndar. Hanna Birna hefur sagt að, að óbreyttu, muni hún sækjast eftir endurkjöri á landsfundi, en samkvæmt nýlegum fréttum hér á Hringbraut fara líkur á því minnkandi.

Eins og staðan er núna eru því mestar líkur á að Ólöf verði ein í kjöri, en nær öruggt er talið að hún fari fram, verði hún ein í kjöri.