Ólöf Helga segir Ragnar hafa „skaðað trúverðuleika hreyfingarinnar“ með því að standa með Sólveigu

Ólöf Helga Adolfsdóttir sem er búin að tilkynna framboð sitt í forsetakosningum ASÍ, fór hörðum orðum um núverandi stjórn Alþýðusambandsins þegar hún ræddi komandi kosningar í viðtali í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

„Í mínum huga og vonandi flestra er Alþýðusamband Íslands eitt það dýrmætasta sem við launafólkið eigum. Mér finnst það alls ekki hægt að setja það, launalaust, í hendur fólks sem hefur ekki trúverðuleika til að leiða hreyfinguna og elur á sundrungu. Setur sína eigin valdahagsmuni fram yfir hagsmuni almenns félagsfólks,“ segir Ólöf Helga um Ragnar Þór Ingólfsson, Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Vilhjálm Birgisson.

„Ég held að það sé ekki rosalega erfitt að horfa fram hjá því að Ragnar, sem formaður VR, félags sem nær utan um mjög margt skrifstofufólk. Hann þagði þegar Sólveig Anna, formaður Eflingar, sagði upp öllu starfsfólki skrifstofunnar. Þarna átti Ragnar ekki bara félag sem nær utan um mjög marga skrifstofustarfsmenn en um leið marga félagsmenn þarna. Hann bara þagði. Afhverju gat hann ekki fordæmt þessar hópuppsagnir? Því hann setur valdabandalag sitt í fyrsta sætið,“ sagði Ólöf sem segir þetta geta dregið dilk á eftir sér.

„Mér finnst þetta ekki bara hafa skaðað hans trúverðugleika heldur líka trúverðugleika hreyfingarinnar í heild sinni. Hvernig getum við haft forseta ASÍ, sem er maður sem getur ekki fordæmt hópuppsagnir? Sérstaklega hópuppsagnir sem vour vegna skipulagsbreytinga. Efling var ekki að fara í þrot og það var engin ástæða til að fara í uppsagnir, önnur en að formanninum var illa við starfsfólkið og taldi sig ekki geta unnið með þeim.“