Ekki í anda kristinna sjálfstæðismanna!

Ólöf Nordal er ekki rétti frambjóðandinn sem næsti varaformaður Sjálfstæðisflokksins að mati hluta þeirra sjálfstæðismanna sem helst segjast hampa kristnum gildum í skrifum sínum.

Þannig segir Jón Valur Jensson guðfræðingur í bloggpistli að Ólöf sé ekki „óskakandídat kristinna sjálfstæðismanna eftir að hún tók það frumkvæði innan síns flokks að tala gegn samvizkufrelsi kenningar­trúrra Þjóðkirkjupresta.“

Hann segir að hvorki verði það kallað stuðningur við „fölskvalausan kristindóm né við það frelsi sem svo oft er í hávegum haft í hátíðarræðum í Sjálfstæðisflokknum“.

Guðfræðingurinn telur að trúleysingjar og andstæðingar þjóðkirkjunnar hafi farið offari gegn kirkjunni og nefnir í þann hóp Eyjuna, Fréttablaðið, 365 miðla og Rúv. „Hafa þessir fjölmiðlar magnað upp þrýstistarfsemi um þetta mál, þar til innan­ríkis­ráðfrúin sprakk á limminu. Hún hafði áður (á Alþingi) viljað samvizku­frelsi fyrir presta [eins og t.d. læknar njóta um sum verk], en nú er hún sem leiðitamur kálfur í bandi vinstri manna og jafnvel trúlítilla. Ekki er þá gæfulegt að hafa hana yfir kirkjumálunum og heldur ekki sem varaformann flokksins.“