Ólöf: krabbameinið tók sig aftur upp

Ólöf Nordal mun halda áfram að sinna störfum sínum þrátt fyrir mótlæti í baráttu hennar við krabbamein.

Ólöf, sem starfar sem innanríkisráðherra, upplýsti á facebook-síðu sinni í gærdag að við reglubundið eftirlit í lok síðasta árs hafi komið í ljós  hækkun á svokölluðum æxlisvísum í blóði sem mæli framgang og stöðu krabbameins.

„Við nánari skoðun komu í ljós smávægilegar breytingar í kviðarholi sem nauðsynlegt er að bregðast strax við,“ segir Ólöf.

Hún er nú komin í nýja lyfjameðferðog segir vissulega vonbrigði að til þessa hafi þurft að koma. „Allt fram á þennan dag benti allt til þess að ég hefði komist yfir þennan hjalla,“ segir Ólöf og vísar þar til fyrri veikinda sinna.

„Ég brenn enn fyrir að vinna fyrir almenning og hugsjónir mínar. Þessi þröskuldur sem ég þarf að yfirstíga á næstu vikum breytir engu þar um. Núna stend ég frammi fyrir þessu verkefni og þarf að klára það. Það er engin ástæða til annars en að vera bjartsýn,\" segir Ólöf keik og hugrökk þrátt fyrir bakslagið.