Öllum undanþágubeiðnum hafnað

Öllum beiðnum um undanþágu frá verkfalli Eflingar sem hefst á miðnætti hefur verið hafnað. Engin truflun verður þó á ferðaþjónustu fatlaðra vegna verkfallsins. RÚV.is greinir frá.

Þetta staðfestir Tryggvi Marteinsson, þjónustufulltrúi hjá Eflingu, í samtali við RÚV. „Verkföll eru verkföll og þau geta verið óþægileg fyrir fólk. Við verðum þess vegna ekki við þessum beiðnum,“ segir hann.

Tryggvi segir að um það bil 15 undanþágubeiðnir hafi borist bæði í gær og í dag og býst við að fleiri beiðnir berist vegna fyrirhugaðra verkfalla í næstu viku. Hann segir að fyrst og fremst séu undanþágubeiðnirnar frá hótelum sem óska eftir því að næturverðir þeirra fái að vinna en einnig hafi borist beiðnir um undanþágu fyrir bílstjóra sem aka börnum og eldri borgurum í sund og frístundir.

Tryggvi bendir á að eitthvað sé um það að atvinnurekendur segi starfsmönnum sínum að þeir megi vinna, jafnvel þó starfsmennirnir telji það rangt. Hann segir að fregnir af því að Samtök atvinnulífsins túlki vinnulöggjöfina öðruvísi en Efling hjálpi ekki til í þeim efnum.