Öllum starfsmönnum sagt upp

Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla, sem framleiðir spurningaleikinn QuizUp, mun loka skrifstofu sinni á Íslandi. Viðskiptablaðið segir frá því í dag að starfsfólki hafi var sagt frá fyrirhugaðri lokun fyrirtækisins í morgun og allir 36 starfsmennirnir fengið uppsagnarbréf.

 
Notendum fjölgaði mikið þegar frumsýningu sjónvarpsþáttaraðar undir merkjum QuizUp á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC var áætluð næsta vor. Hætt var við þá framleiðslu og því brustu rekstrarforsendur til frekari fjármögnunar og þróunar á QuizUp hér á landi.


Búið var að selja sýningarrétt þáttarins til helstu markaðssvæða eins og Bretlands, Frakklands, Chile, Argentínu og Nýja-Sjálands.