Öllum starfsmönnum sagt upp hjá korninu

Bakarískeðjan Kornið hefur sagt öllum starfsmönnum sínum upp, samtals 120 manns. Fyrirtækið hefur glímt við rekstrarerfiðleika undanfarin misseri. Frá þessu er greint á RÚV.is.

Í október greindi Vísir.is frá því að Kornið hygðist loka þremur útibúum, sem væri liður í fjárhagslegri endurskipulagningu hjá fyrirtækinu. Þar kom fram að einkahlutafélagið sem heldur utan um rekstur Kornsins tapaði 48 milljónum króna á síðasta ári. Einkahlutafélagið sem um ræðir er Investor ehf.

DV.is flutti svo fréttir af því fyrir tveimur dögum að starfsmenn útibús Kornsins í Reykjanesbæ hefðu fengið tilkynningu um að loka ætti útibúinu og að ekki stæði til að opna það aftur. Því væri krafta starfsfólks þess ekki lengur óskað.

Í sömu frétt kemur fram að DV hafi haft upplýsingar um að til stæði loka öllum tólf útibúum Kornsins en að ekki hefði náðst í forsvarsmenn keðjunnar til staðfestingar.

RÚV, sem ekki heldur náði í forsvarsmenn Kornsins, tekur fram að nokkrir starfsmenn sem misst hafi vinnuna hafi haft samband við stéttarfélög sín, sem eru VR, Efling og Matvís. Flestir starfsmannanna, eða  um 90, eru í VR.

Í samtali við RÚV segir Bryndís Guðnadóttir, forstöðumaður kjaramálasviðs VR, að hún hafi fengið upplýsingar um lokun útibúa frá Karitas Rós Einarsdóttir, rekstrarstjóra útibúa á höfuðborgarsvæðinu, í fyrradag. Bryndís hefur eftir Karitas að það séu allar líkur á að starfsfólk fái greidd laun um mánaðarmótin. Bryndís segir starfsmenn eiga uppsagnarfrest sem félagið komi til með að sækja sé þess þörf.