Sjálfstæðismenn í Reykjavík virðast hafa gefið upp alla von um að finna fyrirliða fyrir flokkinn í komandi sveitarstjórnakosningum. Þeir sem gjörla þekkja til innanflokksátaka í Sjáfstæðisflokknum í Reykjavík segja ekki fagurt um að litast innanbúðar. Um þetta skrifar meðal annarra Davíð Þorláksson pistil í Viðskiptablaðið. Davíð var formaður SUS - Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
Davíð kynnir hugmynd: \"Skortur á leiðtogaefnum í Sjálfstæðisflokknum í borginni væri hægt að leysa með loforði um að borgarstjóri yrði ráðinn.\" Davíð segir enfremur þetta: \"Framboð í leiðtogaprófkjöri er enginn trygging fyrir öruggu sæti og 1. sætið er engin trygging fyrir borgarstjórastólnum.\" Sjálfstæðisflokkurinn á að lofa því að auglýst verði eftir borgarstjóra verði flokkurinn í meirihluta. Sú aðferð segir Davíð Þorláksson væri betur til þess fallin að ráða hæfan borgarstjóra.
Nánar http://www.visir.is/g/2018180109559