Í fréttinni er vitnað til skýrslu vinnustaðasálfræðings sem segir að samskiptavanda gæti innan embættis lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Í skýrslunni komi fram að ráðast þurfi tafarlaust í aðgerðir til að taka á þeim vanda. Vinna í þá veru er þegar hafin, en nýlega réð lögreglan tvo sálfræðinga til starfa sem eiga að fylgja eftir áðurnefndri skýrslu, en ekki fást upplýsingar frá embættinu um hvernig vinnu þeirra miðar.
Sigríður Björk hefur sjálf sagt að hún kannist ekki við óánægju innan embættisins, en lögreglumenn sem fréttastofa RÚV hefur rætt við undanfarið, tala um ófremdarástand sem farið sé farið að bitna á störfum lögreglunnar.
Starfsmenn lögreglunnar hafa leitað til innanríkisráðherra vegna starfshátta Sigríðar Bjarkar, en í skriflegu svari ráðuneytisins til fréttastofu segir að tveir fundir hafi verið haldnir í ráðuneytinu, með einum starfsmanni lögregluembættisins og með fimm starfsmönnum þess. Þá hafi sömuleiðis eitt formlegt erindi borist ráðuneytinu