Það er gríðarleg heilbrigðisáhætta tengd neyslu áfengis,“ segir doktor Emmanuela Gakidou hjá Lýðheilsuvísindastofnun Washington-háskóla (IHME). Hún er aðalhöfundur nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar sem birt var í læknaritinu The Lancet í gær og tekur til áfengistengdra heilbrigðisvandamála hjá 30 milljónum einstaklinga í 195 löndum.
„Niðurstöður okkar eru í samræmi við aðrar nýlegar rannsóknir sem sýndu fram á skýra fylgni milli drykkju og ótímabærs dauða, krabbameins og hjarta- og æðasjúkdóma. Það að neyta ekki áfengis dregur heilt yfir úr líkum á því að verða fyrir heilsutapi,“ segir Gakidou.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/n-rannsokn-hrekur-mtuna-um-heilsubaetandi-afengisneyslu