Ástæða þess að fólk ákveður að geyma peningana sína á Tortóla, Seychelle-eyjum eða sambærilegum stöðum er einföld. Fólk vill koma peningunum sínum í skjól frá yfirvöldum í heimalöndum þess. Þar njóta eignir þeirra verndar og leynd hvílir yfir því hverjir eiga félögin og hvers eðlis þau eru að öðru leyti.
Þetta segir Björn Valur Gíslason, varaformaður VG. Björn Valur varð á Alþingi fyrstur til að gagnrýna forsætisráðherra vegna Tortólamálsins.
Mál forsætisráðhera er alvarlegra en mál Bjarna Benediktssonar og Ólafar Nordal, enda snýst það um vanhæfi forsætisráðherra segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar.
Í gær komu fram upplýsingar, fyrst á Eyjunni, um að bæði formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins ættu félög í skattaskjólum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ber við misminni og útskýrir svör sín í Kastljósi ekki alls fyrir löngu þar sem hann neitaði að eiga eignir í skattaskjólum með vankunnáttu. Ólöf Nordal innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæisflokksins segir eigið félag óvirkt.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG segir að málið sýni að reglur um hagsmunaskráningu séu meingallaðar. Enginn fulltrúi þingliðsins gengur lengra í viðbrögðum en Björn Valur Gíslason:
\"Með því að koma peningum sínum í slíkt skjól grafa eigendur þeirra vísvitandi undan efnahag og velferð í heimlöndum sínum,\" segir Björn Valur. \" Öll hljóta þau að segja af sér á næstu dögum. Ef ekki, þá verður að koma þeim frá völdum,\" skrifar Björn Valur á eigin bloggsíðu.
Margir bíða nú viðbragða Pírata og aðgerða stjórnarandstöðunnar. Minnihlutinn mun í dag funda um hvort borið verður upp vanttraust á forsætisráðherra. Kosningastjóri Pírata og einn helsti hugmyndafræðingur, Svanur Kristjánsson prófessor í stjórnmálafræði, biðlar til forseta Íslands að aðhafast. Svanur hafði þetta að segja í yfirlýsingu á facebook í gærkvöld:
\"Í ljósi síðustu upplýsinga um framferði ríka 1% fólksins er óhætt að fullyrða að hver einasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins mun greiða atkvæði gegn vantrausti á forsætisráðherra. Hyldjúp gjá hefur myndast á milli þorra þjóðarinnar og þingmeirihluta/ríkisstjórnar. Forseti Íslands má ekki -að mínu mati - sitja hjá aðgerðarlaus. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands handvaldi Sigmund Davíð Gunnlaugsson sem forsætisráðherra. Hann situr svo lengi sem forsetanum þóknast. Í valdi forsetans er að skipa nýja ríkisstjórn -síðan yrði rofið þing og boða til nýrra þingkosninga,\" segir Svanur Kristjánsson.